Breytingar verða gerðar á verðskrá Nethýsingar þann 1. maí 2011.

Um er að ræða alhliða endurskoðun á verðskrá, sem ætlað er að endurspegla betur kostnað við rekstur ólíkra þjónustuleiða. Þannig lækkar verð á sumum þjónustuleiðum, á meðan verð á öðrum hækkar eða stendur í stað.
Nethýsing býður upp á fjölþætta þjónustu sem hentar flestum einstaklingum og fyrirtækjum. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið sleitulaust að því að uppfæra kerfi og bæta við þjónustu til að geta þjónustað viðskiptavini enn betur. Samhliða breytingunni fellur niður afsláttur sem viðskiptavinir Nethýsingar hafa notið. Mánaðargjald eldri þjónustuleiða mun hækka, en mismikið eftir þjónustuleiðum. Ítarlegar upplýsingar um breytingar á einstökum þjónustuleiðum er að finna hér að neðan. Viðskiptavinum sem nýta gamlar þjónustuleiðir er bent á, að nýrri þjónustuleiðir eru að öllu jöfnu hagkvæmari kostur. Við bendum einnig á að hægt er að breyta núverandi þjónustuleiðum þannig að þær henti þér eða þínu fyrirtæki betur.
 
Mikill ávinningur viðskiptavina
Kostnaður við rekstur Nethýsingar hefur aukist nokkuð á undanförnum árum, án þess að honum hafi verið ýtt yfir á viðskiptavini. Þar má bæði nefna hækkun á ýmsum aðföngum og sköttum. Þvert á móti hefur Nethýsing boðið hagstæðari þjónustuleiðir en áður með með miklum ávinningi fyrir viðskiptavini. Að meðaltali hefur því kostnaður viðskiptavina Nethýsingar dregist verulega saman. Þannig hefur kostnaður viðskiptavina Nethýsingar með hýsingar áskrift að meðaltali lækkað frá ársbyrjun 2008, þrátt fyrir að umfang hafi aukist.

Upplýsingar um breytingar á þjónustu við fyrirtæki eru veittar í síma 551-8500.

Smelltu á hlekkina hér að neðan til að skoða upplýsingar um ólíkar þjónustuleiðir Nethýsingar.
Vefhýsing
Icewarp Póstur
Gagnageymsla
Gagnamiðlun
Vefstjóri

http://www.nethysing.is/frettir/93-verdbreytingar