Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Hvað er gagnamiðlun og hvernig nýtist hún þér...

Gagnamiðlun Nethýsingar
Nethýsing býður nú uppá gagnamiðlunar þjónustu sem gerir notendum kleift að nálgast mikilvæg skjöl og vinnugögn gegnum Internetið, hvar og hvenær sem er.

gagnamidlun

Gagnamiðlun Nethýsingar byggir á iFolder hugbúnaði sem er einfaldur í uppsetningu og notkun.
Viðskiptavinir útbúa möppur á tölvu sinni og eftir það speglast sjálfkrafa allt sem sett er í möppurnar inn á kerfi Nethýsingar.
Við það verða gögnin aðgengileg hvaðan sem er hvenær sem er. Þessi lausn er því ekki einungis frábær afritunarlausn heldur líka lausn sem einfaldar dreifða vinnslu og dreifingu gagna og skjala.

Dæmi I – Ein tölva
Notandi er með öll sín gögn á t.d. ferðatölvu.
Byrjað er á því að sækja og setja upp hugbúnaðinn og því næst að setja mikilvægustu gögnin í möppu sem þýðir að alltaf er til öryggisafrit á netþjóni Nethýsingar. Hvort heldur ef harði diskurinn hrynji eða tölvunni er stolið er alltaf til afrit. Þetta gerist algjörlega sjálfkrafa því um leið og tölvan er nettengd sér hugbúnaðurinn til þess að gögnin séu nákvæmlega þau sömu á báðum stöðum.
Að auki getur notandinn nálgast gögnin sín úr hvaða tölvu sem er, hvaðan sem er í heiminum svo lengi sem tölvan er tengd internetinu.

Dæmi II- Margar tölvur
Notandi setur upp hugbúnaðinn á vinnutölvunni, ferðatölvunni og/eða heimatölvunni. Mögulegt er að setja hugbúnaðinn uppá eins margar tölvur og þarf.
Á einfaldan máta breytir notandinn möppum í gagnamiðlunar-möppur, öll gögn í þessum möppum speglast sjálfkrafa yfir á netþjóni Nethýsingar og um leið hefur notandinn aðgang að þessum gögnum á öllum þeim tölvum sem hann hefur sett hugbúnaðinn upp á.

Dæmi: Notandi setur 10 ritvinnslu skjöl í möppuna í vinnunni og leggur af stað heim, um leið og hann ræsir heimavélina getur hann unnið í sömu skjölunum þar. Að auki getur notandinn nálgast gögnin úr hvaða tölvu sem er, hvaðan sem er í heiminum svo lengi sem tölvan sé tengd internetinu.

Dæmi III- Margir notendur (hópar / fyrirtæki)
Allir sem eru skráðir notendur í gagnamiðlun Nethýsingar geta opnað aðgang inn á sín svæði. Fyrirtæki geta haft sameiginleg vinnusvæði þar sem allir starfsmenn geta unnið í gögnum fyrirtækisins hvaðan sem er. Notendur í kerfinu geta notað kerfið á allan máta þ.e.a.s samkvæmt dæmum hér að ofan.

Helstu kostir gagnamiðlunar Nethýsingar:

  • Sjálfvirk afritun skráa á miðlægan gagnamiðlara Nethýsingar.
  • Sjálfvirk speglun skráa á öllum virkum vinnustöðvum notenda.
  • Aðgangur með netvafra að skrám á gagnamiðlara Nethýsingar frá hvaða tölvu sem (sértækur hugbúnaður óþarfur).
  • Öll gögn alltaf aðgengileg hvar sem er hvaðan sem hvenær sem er.
  • Öll gögn fara dulkóðuð í gegnum netið inn á gagnamiðlara Nethýsingar.
  • Þjónustan er óháð staðsetningu notenda, hvort heldur er heima, við vinnu eða á ferð og flugi.
  • Þjónustan virkar á Windows, Mac OS X og Linux umhverfi.
  • Þjónustan byggir á öruggri miðlun upplýsinga.
  • Gagnamiðlun er hraðvirk, þægileg og hagkvæm.
  • Aðgangsstýring er einföld og örugg.

Svona notarðu Gagnamiðlunar þjónustu Nethýsingar:

  1. Veldu "Kaup á Gagnamiðlun".
  2. Náðu í hugbúnaðinn með því að velja smella hér.
  3. Settu hugbúnaðinn upp á viðeigandi tölvu(m) á vinnustað -- eða heimili.
  4. Skráðu þig inn og tryggðu að stillingar henti þér og þínum þörfum
  5. Settu skjölin sem spegla á í möppuna og þau eru sjálfkrafa uppfærðar á miðlara Nethýsingar.
  6. Notaðu vafra til að nálgast skjöl ef þú ert að nota tölvu sem ekki hefur hugbúnaðinn uppsettan.

Verðskrá Untitled
Stærð
5 gb.
15 gb
30 gb.
100 gb
Vefaðgengi
Forrit/ PC/MAC/Linux
Vinnuhópamöguleiki
Verð á mánuði
1.255,-
2.690,-
4.690,-
12.690,-
Auka notandi
500,-
500,-
500,-
500,-

Nánari upplýsingar í síma 551-8500
Þú getur líka sent póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.